Hvað hét dóttir Torfa og Guðlaugar sem fór til Kaupmannahafnar að læra ostagerð?
/0 Comments/in Spurningar tengdar Ólafsdal /by Torfi Olafur SverrissonHvaða einkaleyfi fékk Torfi Bjarnason 1874, sem var jafnframt fyrsta einkaleyfi Íslendings?
/0 Comments/in Spurningar tengdar Ólafsdal /by Torfi Olafur SverrissonSumaropnun 2021
/0 Comments/in Fréttir /by Torfi Olafur SverrissonNú styttist í sumaropnun í Ólafsdal, við opnum húsið sunnudaginn 25. júlí og verður opið til 15. ágúst, opnunartíminn er milli klukkan 12 og 17 alla daga. Eins og áður hefur komið fram eru miklar framkvæmdir við uppbyggingu staðarins og opnunartímabilið því með stysta móti.
Þrettánda Ólafsdalshátíðin verður haldin laugardaginn 14. ágúst og daginn eftir er síðasti opnunardagurinn þetta sumarið.
Í ágúst munu fornleifafræðingar á vegum Fornleifastofnunar Íslands halda áfram vinnu að uppgreftri á víkingaaldarskálanum í Ólafsdal (frá 9.-10. öld) og öðrum fornum minjum, fjórða sumarið í röð. Áætlað var að rannsóknirnar myndu taka þrjú sumur en ljóst er að lengri tíma þarf, enda er um flókið verkefni að ræða. Þessi fundur staðfestir a.m.k. 1000 ára sögu og eykur enn menningar og sögulegt gildi Ólafsdals. Það er því mikilvægt, þegar uppbyggingu líkur, að til staðar verði góð og vönduð fræðslu og upplýsingagjöf fyrir gesta.
Staðarhaldarar í Ólafsdal 2021 verða:
Rögnvaldur Guðmundsson, formaður Ólafsdalsfélagsins og eiginkona hans Helga Björg Stefánsdóttir.
Elfa Stefánsdóttir og Haraldur Baldursson (sem verið hafa staðarhaldarar 2015-2019) munu leysa þau af ásamt systkinunum Torfa Ólafi og Sigríði Maríu Sverrisbörnum Markússonar, Torfa Bjarnasonar.
Við hlökkum til að sjá þig og þína í Ólafsdal í sumar.
Munið:
Aðgangseyrir er óbreyttur 800 kr.
Frítt fyrir Ólafsdalsfélaga og 0-16 ára.
Kaffi, rjómavöfflur og Erpsstaðaís til sölu.
Ókeypis svaladrykkir fyrir börnin.
Sýning um Ólafsdalsskólann á 1. hæð og um konurnar í Ólafsdal á 2. hæð.
Spurning: Hvaða einkaleyfi fékk Torfi Bjarnason 1874, sem var jafnframt fyrsta einkaleyfi Íslendings?
Sumaropnun í Ólafsdal
Íbúðar- og skólahúsið í Ólafsdal verður opið almenningi frá 10. júlí til 1. ágúst 2022. Opið er alla daga milli 12 og 17. Sögusýning um brautryðjendastarf Torfa og Guðlaugar á fyrstu hæð, merktir fræðslustígar og aðrar gönguleiðir sem tengjast staðnum.
Aðgangur að húsinu 900 kr., kaffi/te 400 kr., vaffla 700 kr. ,,Pakki“ aðgangur að húsinu með kaffi/te, og vöfflu (djús fyrir börn) á 1.600 kr. á mann.
Aðgangur ókeypis fyrir Ólafsdalsfélaga og börn 0-16 ára.
Ólafsdalur – Annað efni
Umfjöllun um verkefni Minjaverndar hf. í Ólafsdal má finna hér.
Forleifastofnun Íslands hefur skráð fornleifar í Ólafsdal, skýrsluna er hægt að nálgast hér.
Deiliskipulagsuppdráttur fyrir Ólafsdal frá 19.7.2016.
Breytt deiliskipulag fyrir Ólafsdal frá 16.6.2022