Fréttir
4.7.2010
Ólafsdalsskólinn 1880-1907

Í tilefni af því að nú eru 130 ár liði síðan fyrstu nemendur búnaðarskólans í Ólafsdal hófu nám sitt á staðnum verður sýning um skólann og Ólafsdal opnuð í Ólafsdal, Dalabyggð laugardaginn 10. júlí klukkan 13.00.
Allir velkomnir.
Sýningin verður opin alla daga frá 13-17 í Ólafsdal á tímabilinu 10. júlí til 8. ágúst 2010.
Auk afmælissýningar verður í Ólafsdal sýningin Dalir og Hólar 2010 - ferðateikningar. Sú sýning opnar 24. júlí og verður opin til 8. ágúst. Sjá nánar: http://nyp.is/dalirogholar2010/
13.4.2010
Bréf Áslaugar Torfadóttur til föður síns
20.11.2009
Fyrirmyndarbú Húnvetninga
Á árunum 1866-1869 voru uppi hugmyndir í Húnavatnssýslu að setja á stofn fyrirmyndarbú sem Torfi átti að veita forstöðu. Lögðu Húnvetningar töluvert fé í þetta og stóðu að baki því að Torfi menntaði sig í Skotlandi. Búið varð aftur á móti ekki að raunveruleika.Til eru drög að lögum félagsbúsins og þar á meðal er eftirfarandi grein:
,,Allir félagsmenn skulu borða við sama borð, eða búa við jafnan kost í mat og drykk; þó skal hverjum þeirra frítt fyrir að kjósa sér það er þeir kunna að girnast, hvert heldr að ræðr einungis fýsn eða þörf, svo sem kaffi og fl., allt eptir nákvæmari samningum."
18.11.2009
Sýnishorn úr bréfasafni Torfa
Í byrjun desember 1912 situr Steingrímur Matthíasson héraðslæknir á Akureyri við skriftir, hann skrifar bréf vestur í Dali til Torfa í Ólafsdal og meðal þess sem honum liggur á hjarta er að ræða um dásemdir íslenska skyrsins.
Hann skrifar: ,,Enn fremur sendi ég vini mínum í Ameríku Dr. Kellogg sem ég kyntist í fyrra í Edinborg - sýnishorn af súrskyri sem hann lætur sína bakteríufræðinga rannsaka. Kellogg er frægur vísindamaður og hefur fengið mikinn áhuga á að prófa skyrið okkar eptir þeirri góðu lýsingu sem ég hef gefi honum af því."
1.9.2009
Bréfasafn Torfa
Þrátt fyrir að bréfasafnið sé stórt þá er ég sannfærð um að það vantar töluvert af bréfum inn í safnið og ef einhver þarna úti hefur vitneskju um að gögn frá Torfa sé að finna einhvers staðar út í bæ þá mætti sá hinn sami gjarnan hafa samband við mig (525-5669). Ánægjulegt væri að hafa þetta safn sem allra, allra heillegast en það er hafsjór af fróðleik um lífið í Ólafsdal, búnaðarsögu landsins, persónusögu Torfa og lengi, lengi mætti telja áfram.
Greinilegt er að Torfi hefur haft mikla persónutöfra og átt einstaklega gott með að fá fólk á band með sér til að efla íslenskan landbúnað. Skólasveinarnir fara t.a.m. heim fullir eldmóði og fara hamförum í jarðræktarbótum í sinni sveit. Bændur leita ráða um þetta og hitt varðandi búskapinn og vilja kaupa ljái, fólk leitar ráða vegna alls milli himins og jarðar, hvernig sé best staðið að flutningi til Vesturheims, hvort Torfi geti fundið vist fyrir viðkomandi o.s.frv. Virðing fyrir Torfa og störfum hans er ótvíræð.
Auk bréfasafnsins er svo skjalasafn Torfa á Handritadeild, þar er að finna gögn tengd skólanum, dagbækur Torfa, viðskiptabækur og ýmislegt annað tengt félögum sem Torfi kom að.
5.8.2009
Dagskrá Ólafsdalshátíðar 9. ágúst kl. 13-17
Dagskrá Ólafsdalshátíðar 2009 er hér að neðan. Einnig má finna prentvænni útgáfu af dagskránni undir flipanum "skrár" hér að ofan og þar farið í "Ólafsdslahátíð 2009." Prentið hana gjarnan út og hengið upp/dreifið sem víðast! Eins og sjá má er dagskráin spennandi, jafnt fyrir unga sem eldri.
Fræðist einnig um sýninguna "Dalir og hólar - handverk" sem opnar í Ólafsdalshúsinu sem hluti af hátíðinni. Nánari lýsing á sýningunni er í frétt hér að neðan.
Velkomin!
ÓLAFSDALSHÁTÍÐ 9. ágúst 2009
13.00 Kynning á hátíðinni: Dofri Hermannsson.
13.05 Hálfnað er verk þá hafið er:
Rögnvaldur Guðmundsson, formaður Ólafsdalsfélagsins.
13:15 Ávarp: Svandís Svavarsdótttir, umhverfisráðherra.
13.25 Ávarp: Grímur Atlason, sveitarstjóri Dalabyggðar.
13.30 Tónlistaratriði: Guðlaugur Viktorsson.
13.35 Matur og tækifæri í Ólafsdal:
Guðrún Hallgrímsdóttir, matvælaverkfræðingur.
13.50 Kynning á sýningunni "Dalir og Hólar-handverk."
Þóra Sigurðardóttir, myndlistarmaður.
13.55 Tónlistaratriði: Guðlaugur Viktorsson.
14.00 Lok á formlegri dagskrá.
14.00 Listsýningin "Dalir og Hólar - handverk" opnar í Ólafsdalshúsinu.
Verður opin alla daga kl. 14.00-18.00 fram til 30. ágúst.
14.30 Fyrri ferð með leiðsögn um byggingar og jarðræktarminjar í Ólafsdal.
15.00 Gönguferð með leiðsögn upp í Skál (tekur um klukkustund). Fagurt útsýni.
15.30 Síðari ferð með leiðsögn um byggingar og jarðræktarminjar í Ólafsdal.
Hestar teymdir undir börnum . slegið með orfi og ljá . ostar frá MS í Búðardal
ís frá Rjómabúinu á Erpsstöðum . kræklingur frá Nesskel á Gróustöðum
kaffi og kleinur . krækiber, bláber og aðalbláber (ef komin verða) .... og fleira!
Kaffihlaðborð á Skriðulandi kl. 13.00-21.00
Fólk í þjóðlegum búningum og 19. aldar klæðnaði er boðið sérstaklega velkomið!
5.8.2009
Dalir - hólar - handverk. Sýningaropnun á Ólafsdalshátíðinni 9. ágúst
Dalir - hólar - handverk er sýningarverkefni í Dölum, við Breiðafjörð og á Ströndum sem stuðlar að samstarfi milli heimafólks og aðkominna um handverk og listir. Náttúra og menning svæðisins er uppspretta verkanna, og er skólahús gamla landbúnaðarskólans í Ólafsdal og umhverfi hans útgangspunktur sýningarinnar. Skólinn var á mörkum þeirra þriggja sýslna sem sýningin spannar og naut stuðnings sveitanna í kring á öndvegisdögum sínum. Vegna þessa var ákveðið að nýta húsið sem þungamiðju sýningarinnar og tengja þaðan í lykilstaði í nágrannasveitarfélögum.
Kveikja sýningarinnar er löngun til að taka þátt í mannlífi svæðisins, varpa ljósi á menningarverðmæti, efna til samstarfs við heimafólk og hvetja gesti til könnunar á umhverfi og menningu á Vesturlandi og á Vestfjörðum. Sýningin fer þannig fram á 4 stöðum: í húsi gamla Landbúnaðarskólans í Ólafsdal, á Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð, í Byggðasafni Dalamanna að Laugum í Sælingsdal og í Bátasafni Breiðafjarðar, Reykhólum. Sýningin leiðir gesti um svæðið með því að staðsetja verk sýningarinnar á fjórum stöðum og prenta leiðakort - sem jafnframt er sýningarskrá. Verkefnið er samvinnuverkefni sem tengir listir, handverk og byggðarlög og stuðlar að auknu samstarfi milli heimafólks og aðkomufólks, einstaklinga og menningastofnana á Vestfjörðum, Vesturlandi og víðar.
Menningarráð Vesturlands og Vestfjarða ásamt Ólafsdalsfélaginu styrkja viðburðinn. Nýpurhyrna er aðili að verkefninu.
Höfundar verka:
Aðalsteinn Valdimarsson
Ásdís Thoroddsen/Hálfdán Theódórsson
Guðjón Ketilsson
Guðjón Kristinsson
Hannes Lárusson
Hafliði Aðalsteinsson
Hildur Bjarnadóttir
Hlynur Helgason
Rúnar Karlsson
Sólveig Aðalsteinsdóttir
Unnar Auðarson
Þóra Sigurðardóttir
Sýningin er opin 9. - 30. ágúst 2009 kl. 14-18 alla daga.
http://artinfo.is/olafsdalur/
http://olafsdalur.is/
www.nyp.is



