
Hin árlega Ólafsdalshátíð verður haldin laugardaginn 6. ágúst.
Takið daginn frá. Dagskrá verður kynnt fljótlega en hinn árlegi markaður með lífræna Ólafsdalsgrænmetið, önnur matvæli og handverk úr héraði verður á sínum stað. Lína langsokkur (Ágústa Eva Erlendsdóttir) mætir til að skemmta börnum og fullorðnum og Drengjakór íslenska lýðveldisins mætir með nýtt efni. Upplagt er að dvelja í Ólafsdal eða nágrenni þessa helgi.

Horft yfir hátíðarsvæðið

Börn bregða sér á hestbak

Ekið með börnin á Lanz Alldog vél eins og lengi var notuð í Ólafsdal eftir tíma Torfa

Matar- og handverksmarkaður í fjósinu á Ólafsdalshátíð

Heimalningar mættir á Ólafsdalshátíð