Ótrúlegt en satt er ár liðið síðan vaskt lið skemmti sér við að setja niður grænmeti í matjurtagarðinn.
Það er því kominn tími á niðursetningu lífræns ræktaðs Ólafsdalsgrænmetis 2020.
Laugardaginn 13. júní, ætlum við að hefjast handa kl. 11. Gert ráð fyrir að verklok verði um kl. 16.
Ólafsdalsfélagið býður sjálfboðaliða velkomna í þessa gefandi útiveru þar sem tækifæri gefst til að njóta útivistar í sveitinni við ýmis verkefni.
Tilvalið er að skoða þróun uppbyggingar Minjaverndar í leiðinni.
Hlökkum til að sjá sem flesta, því fleiri því betra, því margar hendur vinna létt verk.
Myndir frá vorverkunum 2019.