Fréttir

5.8.2009

Dalir - hólar - handverk. Sýningaropnun á Ólafsdalshátíðinni 9. ágúst



Dalir - hólar - handverk er sýningarverkefni í Dölum, við Breiðafjörð og á Ströndum sem stuðlar að samstarfi milli heimafólks og aðkominna um handverk og listir. Náttúra og menning svæðisins er uppspretta verkanna, og er skólahús gamla landbúnaðarskólans í Ólafsdal og umhverfi hans útgangspunktur sýningarinnar. Skólinn var á mörkum þeirra þriggja sýslna sem sýningin spannar og naut stuðnings sveitanna í kring á öndvegisdögum sínum. Vegna þessa var ákveðið að nýta húsið sem þungamiðju sýningarinnar og tengja þaðan í lykilstaði í nágrannasveitarfélögum.

Kveikja sýningarinnar er löngun til að taka þátt í mannlífi svæðisins, varpa ljósi á menningarverðmæti, efna til samstarfs við heimafólk og hvetja gesti til könnunar á umhverfi og menningu á Vesturlandi og á Vestfjörðum. Sýningin fer þannig fram á 4 stöðum: í húsi gamla Landbúnaðarskólans í Ólafsdal, á Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð, í Byggðasafni Dalamanna að Laugum í Sælingsdal og í Bátasafni Breiðafjarðar, Reykhólum. Sýningin leiðir gesti um svæðið með því að staðsetja verk sýningarinnar á fjórum stöðum og prenta leiðakort - sem jafnframt er sýningarskrá. Verkefnið er samvinnuverkefni sem tengir listir, handverk og byggðarlög og stuðlar að auknu samstarfi milli heimafólks og aðkomufólks, einstaklinga og menningastofnana á Vestfjörðum, Vesturlandi og víðar.

Menningarráð Vesturlands og Vestfjarða ásamt Ólafsdalsfélaginu styrkja viðburðinn. Nýpurhyrna er aðili að verkefninu.

 Höfundar verka:
 Aðalsteinn Valdimarsson
 Ásdís Thoroddsen/Hálfdán Theódórsson
 Guðjón Ketilsson
 Guðjón Kristinsson
 Hannes Lárusson
 Hafliði Aðalsteinsson
 Hildur Bjarnadóttir
 Hlynur Helgason
 Rúnar Karlsson
 Sólveig Aðalsteinsdóttir
 Unnar Auðarson
 Þóra Sigurðardóttir

Sýningin er opin 9. - 30. ágúst 2009  kl. 14-18 alla daga.
http://artinfo.is/olafsdalur/
http://olafsdalur.is/
www.nyp.is

Skrifað 5.8.2009 kl. 9:49 af RG

Bein slóð á færslu

Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 16
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 34
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 15912
Samtals gestir: 4141
Tölur uppfærðar: 10.3.2010 09:15:00