Fréttir

7.4.2009

Íslenskur gráðaostur í Ólafsdal

Á árunum 1916-1922 var framleiddur gráðaostur í Ólafsdal og sá Jón Guðmundsson frá Þorfinnsstöðum í Önundarfirði um þá framleiðslu. Hann var líka með ostagerð í Sveinatungu (sjá Lögberg 12.9.1918)

Upplýsingar úr Morgunblaðinu 26. Mars 1915:

Islenzkur gráðaostur.

Eins og menn muna kom hingað í fyrra dálítið af íslenzkum graðaosti, sem Jón Guðmundsson frá Þorfinnsstöðum í Önundarfirði hafði gert með frakkneskri gráðamyglu. Fekk sá ostur lof allra þeirra er reyndu og þótti ekki standa að baki þeim gráðaosti útlendum, er hingað hefir fluzt. Þessi tilraun með gráðaostagerð hér, hepnaðist því þegar svo vel, að mönnum vöknuðu vonir um það, að ostagerð gæti orðið framtíðargróðavegur fyrir íslenzka sveitabændur.
Í sumar sem leið reyndi Jón aftur að gera osta, en sú tilraun hepnaðist ekki jafnvel og sumarið áður, og var það mest því að kenna, að gráðamyglan hafði úrkynjast við geymsluna. En það er hægt að laga. Þó er annað meira um vert, að það hefir verið sannað með tilraunum, að vér íslendingar getum gert gráðaosta úr íslenzkri gráðamyglu og jafnast þeir fyllilega á við osta þá, er J. G. gerði í fyrra. í 2. heftinu af Búnaðarritinu þ. á. ritar Gísli Guðmundsson gerlafræðingur um ostagerð. Er sú grein fróðleg mjög, og ættu sem flestir bændur að kynna sór hana. En einn kaflann úr henni skulum vér birta hér, lesendum til fróðleiks:
»Um veturinn 1913 sótti eg bændanámsskeið á Hvanneyri; gerði eg þó nokkrar loftrannsóknir í Borgarfirði og veiddi meðal annars gráðasveppi. Síðar um veturinn ræktaði eg þessa sveppi, og sendi Halldóri skólastjóra á Hvanneyri dálítið af þeim og bað hann reyna að gera gráðaost. Um sumarið gerði skólastjórinn nokkra gráðaosta bæði úr sauðamjólk og kúamjólk. Ostagerðin hepnaðist vel, og sauðamjólkurosturinn var að mínu áliti engu lakari en frakkneskir gráðaostar, nema að því leyti, að myglugróðurinn var ekki nóg á við og dreif um ostinn. í kúamjólkurostinum var myglugróðurinn vel dreifður en osturinn var bragðverri en úr sauðamjólkinni og líktist mjög dönskum gráðaosti, sem gerður er mestmegnis úr kúamjólk, Tilraunir skólastjórans sanna því, að gráðaost má gera úr sauðamjólk með íslenzkri gráðamyglu, jafnvel engu síður en frakkneskri. í rannsóknarstofu minni hefi eg gert nokkra gráðaosta með frakkneskri og íslenzkri gráðamyglu, og virðist mér íslenzk gráðamygla jafnhæf til osta- gerðar og sú frakkneska«.

Sigríður H. Jörundsdóttir

 

Skrifað 7.4.2009 kl. 13:25 af Sigríður H. Jörundsdóttir

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 16
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 34
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 15912
Samtals gestir: 4141
Tölur uppfærðar: 10.3.2010 09:15:00